LG super UHD: Margslungnir litir frá öllum sjónarhornum

SUPER UHD 4K sjónvörpin frá LG hækka staðalinn fyrir nýsköpun í sjónvarpstækni með fjórfalt hærri upplausn en Full HD og Color SUPER tækni sem breytir öllu um hvernig þú horfir á sjónvarp

Kaupa LG Super UHD sjónvarp strax

Bjartari og nákvæmari litir ásamt dýpri svörtum

LG SUPER UHD sjónvörp skila ríkum og sönnum litum frá öllum sjónarhornum. Að auki sýna þau fjölbreyttari litatóna ásamt aukinni skerpu á milli myrkurs og birtu.

Stórfenglegir litir með Nano Cell™ skjátækni

LG Nano Cell skjátæknin notast við nanoeindir til þess að framkalla bestu útgáfuna af hverjum lit. Þessi háþróaða tækni framleiðir fullt úrval lita sem leiða til ljóslifandi myndar.

4K Cinema HDR, eins og leikstjórinn sá það fyrir sér

Cinema HDR tækni LG skilar sýn kvikmyndagerðarmannsins með því að styðja við flest HDR snið. Njóttu alvöru kvikmyndaupplifunar heima hjá þér með Dolby Vision ™ og Advanced HDR í Technicolor auk HDR10 Pro og HLG Pro.

HDR10 og HLG Pro eru HDR lausnir sem LG eru einkaleyfishafar fyrir og gefa frá sér HDR merki sem tryggja dýnamískan ramma fyrir ramma í myndefni með aukinni skerpu og margslungnari tónakortlagnigu.

Full Array Dimming Pro

Full Array Dimming tæknin hefur einstakt staðbundið dimmingarreiknirit LG. Super UHD sjónvörpin stýra hverjum og einum bakljóspixli fyrir sig. Þannig er hægt að tryggja skarpa og greinilega mynd með ótrúlegum kontrast.

Nýr a7 Intelligent örgjörvi

Með a7(Alpha 7) Intelligent myndvinnsluörgjörvanum geta LG sjónvörp framkallað einstaka skjátækni sem gefur litríka mynd með greinilegum smáatriðum og dulin fegurð lítur dagsins ljós.

Afhjúpar sannleikann um liti í sjónvarpi

LG Super UHD sjónvörpin bjóða ekki eingöngu upp á framúrskarandi myndgæði heldur einnig háa myndskerpu. Þau skila nákvæmari litatónum og gera öllum kleift að horfa á ljóslifandi og skýra mynd frá öllum sjónarhornum.

Þitt eigið kvikmyndatjald

Einföld og fallega hönnuð ásýnd frá öllum sjónarhornum með þunnun stílhreinum ramma sem gerir sjónvarpið að kvikmyndatjaldi.

Dolby Atmos® kvikmyndahúsahljóð að heiman

Dolby Atmos® skapar kraftmikla hljóðhreyfingu sem umlykur þig jafnvel ofan frá og fangar hverja hreyfingu á skjánum. Með Dolby Vision verður kvikmyndaupplifunin fullkomnuð.
*Dolby Atmos og tvöfalt D-táknið eru skráð vörumerki Dolby Laboratories. Dolby Vision er vörumerki Dolby Laboratories.